BÖrn í ræðu og riti
Leitarbox

24.11.2009 22:25:33 / brynjargunn

Fiskisaga með ormi ( 24.nóv 2009 )

Jæja, tækifærisvísur eru til að gleðja og ég bjó þessa til í dag og fylgir smá saga til skýringar. Ásta kom með plokkfisk í vinnuna, sem hún hafði útbúið úr þorski sem Sammi hafði veitt. Fríða fór þá að spyrja hana hvort að hún hafi ormahreinsað fiskinn vel og sagði henni sögu af konu á Dalvík, sem borðaði þorsk með hringormi, sem kom svo út á lærinu á henni ! Ég hafði mikið gaman af þessu og borðaði plokkfisk og viti menn; Madda fann einn lítinn hjá sér og ég setti hann á handlegginn og fór inn til Ástu og þakkaði fyrir góðan fisk og leit svo á handlegginn og sagði "shit maður, sérðu þennan" !!  Hún var ekki hrifin, en þá datt mér í hug að gera smá vísu og notaði lagið Fiskurinn hennar Stínu:

     

Eitt sinn fór hann Samúel á sjó

með sínum hætti.

Og Ásta brosti mikið söng og hló

er aftur mætti

Samúel sem veitt hafði þar gulan fisk

og vildi borða.

Ég vill plokkara og rúgbrauð á minn disk

Sammi tók til orða.

            Fiskinn minn nammi nammi namm

            Fiskinn minn nammi nammi namm.

Daginn eftir Sammi fór á stjá

og fór að pissa.

Þá kallaði hann Ástu sína á

og sýndi hissa.

Ásta vildi óðar betur sjá

hvað þarna færi,

öskraði og í öngum sínum lá

við Samma læri.

            Ormurinn ojjjojjojj  

            Ormurinn ojjojjojj.


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.11.2009 18:59:20 / brynjargunn

Sammi 50 ára ( 12. nóv 2009 )

Samúel Örn Erlingsson varð 50 ára á dögunum og ég vildi nú reyna að gleðja þann gamla með smá kveðskap og lét lítinn whiskypela fylgja með.

    VB.is : Samúel Örn tekur ...

Sem meðreiðarsveinn hef ég margt þurft að þola

og mörgu ég sagt gæti frá.

Þú leitt hefur undir mig alls konar fola

ég nefnt gæti Milljón, Drauminn og Mola      

ég glaður hef setið þá.

           

Nú fimmtíu ára er ferð þín um heiminn

og ferillinn rétt er nú hafinn.

En varastu Sammi að verð´ekki of dreyminn

víst að á klukkuna stundum ert gleyminn

og rúmlega önnum kafinn.

 

Líkt og í íþróttum hálfnaður leikur

en lífið þér blasir nú við.

Ég veit að við keppni þú aldrei ert smeykur

við andstreymi eflist og stendur þá keikur

þú hefur þér Ástu við hlið.

 

Ég óska þér gæfu og gleði í dag

gangi þér allt mjög í haginn.

Ég held að ég endi nú hér þennan brag

með óskum um sigra í ævinnar slag,

til hamingju Sammi, með daginn !


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.10.2009 13:11:13 / brynjargunn

Ljósið ( 2000 )


Þetta samdi ég til að senda inn í samkeppni um Ljósanæturlag hjá Reykjanesbæ og sendi það inn, en hlaut ekki náð......  

        Rough_Sea_2.jpg

Ljósið

 Ljósið er svo leiðandi

og lýsir okkur veg.

Við sjóinn er það seiðandi

við sjáum þú og ég.

 
Bergið faðmar ölduna og flissar henni mót

en faðmlögin þau eru ekki alltaf blíðuhót.

 

Rökkrið virkar róandi

rómantíkin góð.

Friðsældin er fróandi

fögur ástarljóð.

 

Bergið faðmar ölduna og flissar henni mót

en faðmlögin þau eru ekki alltaf blíðuhót.

 

Skuggar eru æsandi

ógna okkar sál.

Hljóðin virka hvæsandi

hljóðnar okkar mál.

 

Bergið faðmar ölduna og flissar henni mót

en faðmlögin þau eru ekki alltaf blíðuhót.

 

Gott er fyrir gefandi

að gefa rauða rós,

en sætast er og sefandi

að senda frá þér ljós.

 

Bergið faðmar ölduna og flissar henni mót

en faðmlögin þau eru ekki alltaf blíðuhót.


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.09.2009 15:23:40 / brynjargunn

Bónorð

Fyrst maður er orðinn svona rómantískur í ljóðavali þá er líklega rétt að fara bara alla leið með þessu ljóði. Þetta samdi ég nú reyndar löngu eftir að ég stamaði minni beiðni upp við mína yndislegu konu, en þetta er þá tilbúið til brúks fyrir þá sem þurfa !

                    in Jokes . Tags: marriage ...

Bónorð

 Um götuna geng ég

geng á þinn veg

því hjarta mitt kallar á þig.

Ég þrái þig heitt

þig gæti leitt

upp að altari, ef vildir þú mig.

 

Ef þú vilt mig ei sjá

þá segðu því frá

og vísaðu mér þá á braut.

En ég trúi því ei

að segir þú nei

um mig sem þinn lífsförunaut.

 

Ég bið þig því nú

því heit er mín trú

að þú takir mér eins og ég er.

Ég vil og ég vona

að þú verðir mín kona

í hjónaband gakktu með mér.


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.09.2009 14:39:40 / brynjargunn

Á vertíð ( 2003 )

Þetta er samið þegar ég var á Hákoni EA.

            Hákon EA 148

 

Dagarnir líða svo hægt hér um borð

þá hugurinn leitar til þín.

Ég þrái að heyra þín blíðustu orð

þrái þig ástin mín.

 

En síldin er hrekkjótt, hverfur svo fljótt

og hafið er endalaust, blátt.

En kanski við komumst í feitt næstu nótt

þá kem ég vonandi brátt.

 

Ég man það svo vel er ég kvaddi og fór

augu þín sögðu svo margt.

Í minningu minni er sú stund nú svo stór

og saknaðarástand mitt hart.

 

Ég tel nú þær stundir, til saman á ný

við sjáumst mín heitasta ást.

Og nýtum sem best okkar örlitla frí

ég bíð að við fáum að sjást

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.09.2009 14:33:57 / brynjargunn

Hilmar fimmtugur

Það var afmælisveisla hjá mági mínum Hilmari um helgina og af því tilefni setti ég saman þennan brag við KR-lagið sem Bubbi gerði ódauðlegt.

                 ... - Íþróttir - Fótbolti

Við gleðja viljum mjög góðan dreng,
Garðabærinn er staðurinn.
Við sláum léttum tónum á streng
syngdu með , þetta er maðurinn.

Hann heitir Hilmar – Hilmar
og hann er vinur minn.
Hann heitir Hilmar – Hilmar
og hann er vinur þinn.

Hann heitir Hilmar, Runólfur Hilmar
hann hefur migið í saltan sjó.
Hann giftist Ernu og eiga þau Tómas
About Fish er hans líf og fró.

Hann heitir Hilmar – Hilmar
og hann er .........

Fimmtugur nú karlinn er
en líkt og vínið batna fer.
Hann þekkir bæði gleði og tár
haldið hefur með KR mörg ár !

 Við stöndum saman öll hér sem eitt
syngdu með , þetta er vinur þinn.
Við elskum Hilmar öll hér svo heitt
höfum hátt þetta er dagurinn.

Hann heitir Hilmar – Hilmar
og hann er .....


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.08.2009 15:47:16 / brynjargunn

Kveðja frá mér ( 2002 )

Þetta er samið við gamla perlu frá Eagles og ætlað fyrir kvenrödd.

               


Kveðja frá mér                                      Lag : Desperato með Eagles

 Ein á báti

eftir að skildir þú við mig.

Þú mér kastaðir frá þér, eins og óhreinni flík.

Ég er alein, alein og enginn mig huggar

og enginn á morgun sem að vaknar mér hjá.

 

Saman áttum marga gleðistund,

saman áttum okkar ást,

sem ég geymi í hjarta mínu alla tíð.

En nú finn ég hvernig samband okkar einfaldlega brást

og sem betur fer þá búið er það stríð.

 

Ein á báti

er kanski ekki það versta

sem mig fyrir gat komið, eins og leið mér hjá þér.

Ég hef frelsi, já frelsi loksins hef fengið.

Ég finn hvernig lífið núna blasir mér við.

 

Aldrei aftur verð ég ambátt þín,

færðu að ráða því hvort sólin skín.

Ég nú á mig ein og ræð nú yfir mér.

Því að við mér blasir veröld ný

allt hið vonda fær nú loksins frí.

 

Ég er...

Ein á báti

eftir að skildir þú við mig.

Þú mér kastaðir frá þér, eins og óhreinni flík.

Ég er farin, langt burtu farin er frá þér

og að skilnaði syng ég nú ( kór: að skilnaði syngur þú )

já að skilnaði syng ég nú :

Kveðju frá mér.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.07.2009 13:04:38 / brynjargunn

Ský ( líklega 2000 )


                

Ský

 Er ég horfi til himins

þá hugsa ég margt

og hugsanir mínar um reika.

Það sem yrki þá núna

það verður hér sagt

og verður að veruleika.

 

Líkt og skýin í loftinu

liðast um ein

lævís við himininn leika.

Mér líður sem læknir

sem lækna vill mein

og stendur við rúm þess dauðveika.

 

Og andi þess dauðvona

umbreytist í ský

um himininn síðan mun reika.

Er sjálfur ég dey

ég heiti nú því

að hlutverk sem ský mun ég leika.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2009 11:56:33 / brynjargunn

Á vegi mínum ( 2006 )

Þetta samdi ég við fallegt lag sem Erla , dóttir mín samdi og vantaði texta við

                 

Á vegi mínum varð vinur minn

Ég vild´að kæm´ann hingað inn.

Ég veit að hann er vinafár

Ég veit í hjarta hans er sár.

 

                   Ég er fús að hlusta vinur

                   Ég vil heyra orðin þín.

                   Ég skal reyna að bind´um sárin þín og

                   Ég mun síðar verða þín.

 

Minn vinur á í vanda nú

Minn vinur hefur  á sér glatað trú

Hann hefur fleygt sínu lífi á glæ

Hans egó er á við lítið fræ.

 

                   Ég er fús að hlusta vinur

                   Ég vil heyra orðin þín.

                   Ég skal reyna að bind´um sárin þín og

                   Ég mun síðar verða þín.

 

En öll við eigum okkar slæmu tíð

Öll við heyjum okkar innra stríð

Þá er gott að  gleyma sér

Góði vinur ég verð hjá þér.

 

                   Ég er fús að hlusta vinur

                   Ég vil heyra orðin þín.

                   Ég skal reyna að bind´um sárin þín og

                   Ég mun síðar verða þín.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.07.2009 09:38:52 / brynjargunn

Lífsins ljós ( 1999 )

Áfram kemur þetta, en gaman væri að fá einhver "komment", þó ekki nema til þess að vita að fleiri en ég sjálfur lesa þetta yfir :-)  . Þetta er kveðskapur við lagið Thank you for the music með Abba , en Þórunn Vala bað mig um að gera íslenskan texta að mig minnir fyrir keppni í söngvakeppni í MH.

         

LÍFSINS LJÓS

 

Líf mitt var fábreytt, og fagnaðarefnin ei tíð

að ferðast í huganum færði mér andartök blíð.

Svo komst þú sem þruma af himni til mín

þá varð ég ástfangin, blinduð af sýn.

Ég varð hrifin af þér og ég vild´ að þú litir við mér.

 

Þú færðir ljósið inn í líf mitt,

það ljós mun lifa.

Ljós sem lætur hjörtun bifa..

Ástin mín er einlæg og heitt ég vona að þú,

elskir mig nú.

Því að án þín ég verð aldrei sú.

Þú færðir ljósið inn í líf mitt

og líf mitt er nú þú.

 

Ég sá þig um vetur þú kinkaðir kolli til mín

Ég kunni því vel og sendi það sama til þín.

En ekkert svo gerðist og gamanið beið

þú gerðir mig óða, ég varð öskureið

og ég særði þig þá, en nú er ég mjög yfir því leið.

 

Þú færðir…….

 

Loksins þú skildir, hvað ég þig þráði ofurheitt

Mér leið sem lífið snérist um mig eina, ,

Ég varð þín,

ástin mín,

ég og þú.

 

Þú færðir…

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.07.2009 11:38:35 / brynjargunn

Málverk ( ekki vitað )


    


Málverk

Það brakar í gólfum, þá gengið er um

og gangarnir vís´okkur veginn.

Því þetta er húsið sem horft hefur á

húsið sem sagt gæti öllu því frá

þegar málarinn frægi varð sleginn.

 

Í stofunni blasir við stórbrotið verk

af stúlku að þvo sér um hendur.

Hvert pensilfar sýnir að sá sem býr hér

söknuð í hjarta hljóta hann ber

út af stúlkunni sem þarna stendur.

 

Og stúlkan hún horfir með sakleysissvip

horfir með augum svo bláum.

Hár hennar gulleitt er bundið í hnút

um hálsinn hún ber þennan dimmrauða klút

en hug hennar hvergi við sjáum.

 

Málarinn magnþrota situr á stól

sem dæmdur af sínu verki.

Hún rænt hefur hjarta hans, huga og sál

í hjarta hans brennur nú leiftrandi bál

hans síðasta minnismerki.


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2009 09:51:24 / brynjargunn

Vitneskja ( ekki vitað hvenær samið )

Hér kemur kveðskapur sem ég fann á gömlum "floppy"disk og kennir þar ýmissa grasa.

Vitneskja

 Hvað er rangt, hvað er rétt ?

Hvað er hrjúft, hvað er slétt ?

Svona leitum við svara

svona spyrjum við bara.

 

Ef við vitneskju leitum,

vandamál ekki vitum,

þannig þroskum við huga

þannig munum við duga.

 

Ég hef prófað og sannað

og ég veit hvað er bannað.

Ekki veð ég í villu

eða vantar átyllu.

 

Marga hugsun hef þróað

heilmikið hef prófað.

Þannig komst ég að því

það sem mig langaði í.

 

Sumt er logið, sumt er satt

sumt er auðvelt, sumt er bratt.

Þannig verðum við að lifa

og vandamálum öllum bifa.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.06.2009 15:20:29 / brynjargunn

3.maí - Gabríela

Næst er það ljóð sem ég samdi þegar litla systir eignaðist sitt fyrsta barn, Við vorum með veðmál í gangi með dagsetninguna og skýrir það síðustu línurnar í síðasta erindi, en rauðvín var lagt undir og Kristinn bróðir held ég hafi unnið pottinn.


3. Maí  2001.

 

Á fimmtudagsmorgni í maí ertu fædd

og mikil varð gleðin í bænum.

Svo fíngerð og falleg af Guði vel gædd

og foreldrum þínum vænum.

 

Og fagnaðarerindið flýgur um heim

fljótlega á tölvubandi .

Því tæknin hún tengir og þjónar vel þeim

sem tengjast í öðru landi.

 

 Og faðirinn stoltur við stelpurnar sínar

stjanar og gerir það glaður.

Og gestir þeir koma með gjafirnar fínar

gleðst nú hver einasti maður.

 

 Ei leið svo á löngu að nafn kom á telpu

og leystu þau vel úr þeim vanda.

Gabríela , er nafnið sem nú er á stelpu

nafn sem um framtíð skal standa.

 

 Og Gabríela ég óska að framtíðin þín

yndisleg verði með þínum.

Ég fyrirgef fljótt það að tapað sé vín

ef fer allt að óskum mínum.

 

 

                             Binni frændi


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2009 16:23:07 / brynjargunn

Bítlalagið ,, Let it be " með mínum texta

Það dróst nú eitthvað að koma þessu frá sér, en ég lofa að reyna að bæta um betur.

Lag : Let it be         

 Það er ást

 Þegar finn ég fyrir návist þinni

fer um æðar mínar bál.

Ég veit það nú með vissu, það er ást.

Og stundum er ég ei með sinni

söknuður mitt hjartansmál.

Ég veit það nú með vissu, það er ást.

 

Það er ást, það er ást,

það er ást, það er ást

sem heltekur minn huga, það er ást.

 

Hjarta mitt er haldið trega

ef hverfur þú mér stundu frá.

Ég vil því með þér lifa, það er ást.

Ég fer ei villu vega

verð þér trúr, ég vill ei aðrar sjá.

Ég vil því með þér lifa, það er ást.

 

Það er ást, það er ást,

það er ást, það er ást

sem heltekur minn huga, það er ást.

 

Og seinna verðum gömul saman

samt þá mun ég elska þig.

Til æviloka saman, það er ást.

Á gamalsaldri það verður gaman

ef gamlan muntu elska mig.

Til æviloka saman, það er ást.

 

Það er ást, það er ást,

það er ást, það er ást

sem heltekur minn huga, það er ást.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.05.2009 15:52:06 / brynjargunn

Aftur kveðskapur...

Mér hefur verið sagt að ljóðin, sem ég setti inn hér fyrstu mánuðina á blogginu, hafi vakið lukku og margir óskað eftir að lesa meira frá mér. Það bar því nokkuð vel í veiði í dag þegar ég fann gamla floppydiska frá því að ég var á sjónum og þar fann ég nokkrar perlur ( ? ) sem gaman væri að deila með þeim ykkar sem þetta lesa.
Til að magna upp spennuna ........ ákvað ég að birta það fyrsta í þessari röð næsta mánudag og skella þá inn nýju vikulega á meðan þessi forði endist.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  25  Alls: 22425